Myndbandið Tallene fra 1-100 geturðu sýnt nemendum þínum þegar þið ætlið að æfa framburð talna. Sjá hér.
Myndbandið Seks idéer til að lære tal geturðu notað til að fá innblástur um hvernig hægt er að þjálfa tölur í kennslunni. Sjá hér. Að lokum koma tvær hljóðæfingar sem nemendur geta hlustað á og hermt eftir.
Hljóðæfingar
Í kennslu geturðu spilað þessar hljóðupptökur fyrir nemendur, látið þá hlusta á söguna og t.d. fengið þá til að skrifa niður tölurnar sem þeir heyra.
Í myndbandinu Seks idéer til að lære tal geturðu hlustað á hvernig þú getur notað munnlegar æfingar með tölum. Hér fyrir neðan er pdf útgáfa til að prenta út, sjá nánari leiðbeiningar um notkun á því í myndbandinu.
Hér finnurðu tvö myndbönd um framburð danskra sérhljóða. Það fyrsta De danske vokaler-elevvideoer ætlað nemendum til að æfa sig að bera fram sérhljóðin á dönsku.
Hitt myndbandið 6 idéer til að undervise i danske vokaler er ætlað kennurum. Þar geturðu fundið innblástur að því hvernig hægt er að vinna með sérhljóða í kennslu.